Þótt Sólin skíni
Suma daga er erfitt að halda sönsum og sínu striki. Ég hef verið niðurlút í dag og því leitað mér að innblæstri þrátt fyrir að sólin hafi skinið í morgun og þrátt fyrir að ég hafi komið snemma í vinnuna og átt ágætis vinnudag. Ég er búin að fara minn hefðbundna blogg-rúnt en því miður virðast fæstir vera færsluglaðir. Ég var við það að fara að skoða stjörnuspekissíður, opruh og brian tracy þegar einn al-uppáhaldsbloggarinn minn bloggari dauðans-Ármann ákvað af góðmennsku sinni einni að gefa mér eitt eintak af bókinni sinni - Fréttir frá mínu landi. Þar sem hann bauð nokkrum lesendum sínum að hafa samband ef þeir vildu gefins eintak ákvað ég að slá til og sendi honum línu. Þó ég vinni aldrei neitt ákvað ég að ég gæti þó allavega þakkað honum fyrir skemmtilegheitin í gegnum tíðina. Það væri bara alger bónus ef ég fengi líka eintak. Oh viti menn...hann sagðist myndi gefa mér eitt! Ég hlakka mikið til að fá bókina í hendur. Mér líður strax betur! Takk Ármann!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Hæ elskan,
gaman að lesa bloggið þitt. Þú ert svo skemmtilegur penni og ég sakna samvistanna okkar fyrir 10 árum ;)
já vá, ég sagði 10 árum...
Kær kveðja frá Danmörku.
Elsku Kidda! En gaman að heyra frá þér...ég var bara að sjá kommentið þitt núna! Ég er svo hissa að sjá að þú sért að fylgjast með...held einhvern veginn alltaf að ég sé að skrifa texta sem engin les. Og já vá, við verðum að hittast næst þegar þú kemur heim! Við missum greinilega báðar af reunioninu :( Ég sakna samvistanna líka - ví níd tú kets öp!! :D
Sendu inn athugasemd