Oh Sol where art thou?
Ohhh, hvar er sólin!!??! Ég er greinilega mjög sólarþurfi því munurinn á mér milli bjartra og grárra daga er óhugnalegur. Á dögum sem þessum finnst mér nánast allt ómögulegt og drattast einhvern veginn áfram. Ég eyddi 20 mínútum í morgun við að reyna að finna mér jakka sem væri smá sumarlegur svo ég væri ekki alltaf svona svört - vildi líka reyna að koma mér í betra skap...því já föt gera það oft....önnur ástæða fyrir af hverju ég verð að fara að flokka föt og finna hina og þessa flíkina sem ég er löngu búin að gleyma að ég eigi. Ég fann engan jakka sem mér fannst passa og fór því bara í jarðarfaraátfitti í vinnuna. Ég er reyndar á grænum hælum.
Annars langar mig að benda ykkur á að lesa síðu ´tis the ballad of bob - hann á færslu dagsins. kom mér í ívið betra skap og er ástæða þess að ég ákvað að blogga rétt í þessu.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 comments:
Sendu inn athugasemd