fimmtudagur, maí 29, 2008

Spennt

Mér finnst tilhlökkun góð tilfinning. En þegar ég segist hlakka til einhvers á leikarinn það til að segja "Don´t wish your life away".

Ég er svo spennt því á morgun flýg ég af stað til Tókíó. Í þetta skiptið ætla ég mér stóra hluti en þó ekki það stóra að þeir séu óraunhæfir. Ég hef lært af reynslunni. Ég stefni að heilbrigðu líferni - staðgóðum morgunverði, jóga og nægilegum svefni. Ég ætla mér líka að nýta tímann vel í skoða þann furðulega heim sem Tókíó er. Ég ætla meira að segja að reyna að blogga slatta um hann. Það er líka voða gott að vera að fara að eyða tíma með fjölskyldunni. Soldið spes að geta farið úr mannmergðinni og látunum og beint í faðm fjölskyldunnar. Svona soldið lítið Ísland í Tókíó.

0 comments: