Ég er komin með svakalega útþrá...Fæ oft yfir mig þessa dagana pínu innilokunartilfinningu og langar svo að brjótast út. Vil umturna öllu, snúa öllu á hvolf og byrja uppá nýtt. Ég sakna þess að vera ung og áhyggjulaus í Suður Frakklandi.
Talandi um Frakkland. Vá hvað ég fékk mikið blast from the past um daginn er ég labbaði niður bankastrætið. Blastið var svo mikið að ég snerist í hálfhring og skundaði ofurhratt í hina áttina - upp bankastrætið. Ég veit að það er ekki fullorðins og var örugglega mjög obvious ef einhver hefði verið að fylgjast með - en vá ég gat ekki hitt þetta past blast þar sem hann hefur reynt að vera í sambandi við mig í 7 ár og ítrekað lofað (hótað réttara sagt) að koma til Íslands og eh...giftast mér!! Auk þess var ég með slæmt keis af ljótunni - það hefði nú kannski leyst þetta en hvað get ég sagt...ég er grunn.
Tóta ljóta.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 comments:
Sendu inn athugasemd