miðvikudagur, júlí 23, 2008

Syngi Syng

Ég er soldið spennt. Syng í brúðkaupi á laugardaginn og er í fyrsta skipti í langan tíma ekki með leiðinda-hnút í maganum yfir giggi. Held ég muni muna eftir því að þetta á að vera gaman. Brúðkaupið og veislan á að vera út í Viðey...lítil kirkja, kjóll sem hægt er að nota aftur, svo lítill farði að hann hylur ekki freknur, tónlistarmenn eru vinir brúðhjónanna, einungis vinir og vandamenn og svona eins og ég ímynda mér að brúðkaup eigi að vera - í takt við fólkið sem er að gifta sig. Kannski að ég láti eitthvað hér inn um það eftirá...

Ó bæ ðö vei, ég hefði svoleiðis farið að háskæla held ég ef ég hefði orðið vitni að árás háhyrninganna á hrefnuna sem talað er um í fréttunum. Næs hvalaskoðunarferðin sú.

0 comments: