fimmtudagur, ágúst 28, 2008

Fimmtudagur

Það er verið að mála ganginn fyrir utan skrifstofuna mína - ég hef staðið mig að því að falla nánast í trans við að horfa á rúlluna þekja viðbjóðslega karrí-gula-litinn sem var fyrir með hvítu. Eitthvað friðsælt við það. Sem minnir mig á það...ég verð að fara að mála heima hjá mér...Er búin að vera á leiðinni í allt sumar. Hlakka til að labba inni í ferskleikann þegar það er búið. Það er eitthvað hugleiðslutengt við að breyta veggjunum í kringum sig.

0 comments: