miðvikudagur, nóvember 05, 2008


rababaragrautur gítar te varalitur
...í því er té.

Vá hvað ég er lélegur bloggari.

Ég elska heimabakaðar kökur og bökur og svoleiðis. Langar mikið að vera soldið heimilisleg í vetur og læra hvernig á að gera svoleiðis. Vera með svuntu, sleif og hveiti í hárinu. Ég held ég byrji bara í þessari viku svei mér þá. Reyni kannski bara við skúffukökuna hennar mömmu.

Ég er annars að reyna að setja saman prógram til að halda á rósenberg eftir smá. Soldið gaman bara.

Ég er líka að reyna að átta mig á hvaða jólalög væri sniðugt að djassa upp.

Svo er ég að undirbúa jólaskókassa sem á að senda til Úkraínu...hann á að vera fyrir 7-9 ára stelpu. Skemmtilegt og fallegt prójekt sem allir ættu að taka þátt í. Sá ekki lítið eftir að hafa ekki tekið þátt í fyrra. Ef ég er dugleg núna næ ég kannski að útbúa tvo...einn stráka líka.

Ég var að skoða ævisögu Billie Holiday. Mikið merkileg kona sú. Vissuði að hún var handtekin "as she lay on her deathbed". Ekki lítið harsh...eins og flest annað í lífi hennar. Langar voða mikið að sjá "Lady sings the blues" og ætla að tjékka hvort Aðalvídjóleigan eigi hana ekki - Díana Rosa Skvís var tilnefnd til Óskars fyrir hana meiraseija.

bæ.

0 comments: